Nokkur slökkvilið hafa nú komið til aðstoðar á öskusvæðið. Slökkviliðin á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Hvolsvelli komu að hreinsunarstarfinu í gær og fram eftir kvöldi. Menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Brunavörnum Suðurnesja og Brunavörnum Árnessýslu mættu á staðinn i gærkvöldi og gistu á svæðinu i nótt. Slökkviliðið á Höfn bættist í hópinn i morgun og í dag koma til viðbótar menn og búnaður frá Isavia.
Fimmtán starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Ríkislögreglustjóra og Landhelgis-gæslu Íslands útskrifuðust á föstudaginn af námskeiði til B-réttinda kafara, leit og björgun. Um þrjátíu starfsmenn SHS munu því hafa réttindi til þess að stunda leitar- og björgunarköfun að lokinni staðfestingu Siglingastofnunar.