Almennt má segja að besta leiðin sé að fara alltaf varlega í umgengni við öll efni. Mörg hættuleg efni (hreinsiefni ) eru seld til heimilisnota og eru því til í mismiklum mæli á hverju heimili í landinu. Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvað verið er með í höndunum og lesa leiðbeiningar á umbúðunum vel fyrir notkun.
Ekki má blanda saman tveim eða fleiri óskyldum efnum því til þess að gera saklaust efni til heimilisbrúks getur orðið lífshættulegt við að blandast öðru slíku.
Að blanda saman t.d. hreingerningaklór við sýru myndar banvænt klórgas. Sumir nota vítissóta til að losa stíflur. Notkun á vítissóta er mjög hættuleg og má aldrei blanda honum saman við önnur efni.
Höfum því eftirfarandi ávallt í huga við meðferð efna:

Öll efni sem skilgreind eru sem hættuleg skulu hafa varúðarmerki álímd á umbúðirnar sem öllum eru auðskyldar. Einnig skulu þar vera leiðbeiningar um viðbrögð við óhappi og hvort leita þurfi læknis.
Sýra í rafgeymi bifreiðar er einnig mjög hættuleg, ef hún slettist á hörund byrjar að brenna undan henni. Skola verður svæðið með mjög miklu vatni og leita til læknis ef brunasvæðið er stórt.
Ef slys með hættulegt efni hefur orðið í nágrenni heimilisins eða vinnustaðarins mun slökkvilið og/eða lögregla láta íbúa vita hvað best er að gera. Það mun vera gert með því að lögreglubílar aka um hverfið og tala til fólks í hátölurum eða að Neyðarlínan hringir í fólk á viðkomandi svæði. Fólk ætti einnig alltaf að hlusta á tilkynningar í útvarpi er svona stendur á.
Sé um minniháttar mengun að ræða þar sem ekki er talin þörf á að fólk yfirgefi heimili sín er gott ráð að loka öllum gluggum og auka hitann í íbúðinni/húsinu verulega til að mynda yfirþrýsting sem vinnur á móti því að mengað loft komist inn.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef Umhverfisstofnunnar.
Þar er einnig að finna leiðbeiningar um merkingar efna