Hátt í tuttugu starfsmenn SHS söfnuðu áheitum í Reykjavíkurmaraþoninu sl. laugardag, þegar þeir hlupu 10 km með hjólastólsbundnum þátttakendum. Flestir slökkviliðs- og sjúkraflutningamannanna voru í slökkvi- eða sjúkraflutningagöllum í hlaupinu.
Engan sakaði þegar eldur kom upp að Mýrargötu 16 í Reykjavík sl. laugardagsmorgunn. Íbúar jarðhæðar brutu rúðu til þess að komast út úr húsinu. Slökkviliðið hjálpaði einum íbúa út.