Á hóteli

Hótelið

Hvað gerir þú í neyðartilfelli
Þú átt að bregðast strax við. Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang bregstu strax við án þess að hika og ferð að næsta útgangi. Hafðu í huga að leiðin gegnum aðalinnganginn þarf ekki að vera sú sem er næst og að alls ekki má nota lyftuna. Kynntu þér brunavarnir hótelsins strax við komu.

Um leið og þú ert kominn inn á herbergið þitt skaltu kynna þér leiðbeiningar um brunavarnir hótelsins sem eru oftast festar innan á herbergishurðirnar.

Út-ljós og skilti vísa þér á leiðir út úr húsinu og mundu að þær eru alltaf fleiri en ein ef sú sem þú hefur valið er ófær. Ef þú átt erfitt með að átta þig hikaðu ekki við að spyrja starfsfólk eða aðra í kringum þig til vegar. Ef gangurinn fyrir framan hótelherbergið er fullur af reyk er betra að vera áfram í herberginu og láta vita af sér gegnum síma eða veifa laki út um gluggann.

Farðu út og vertu úti. Þegar þú kemur út máttu alls ekki fara inn í hótelið aftur fyrr en hættuástandi hefur verið aflétt.

Láttu vita. Ef þú telur þig vita um einhvern sem er ekki kominn út láttu öryggisverði og björgunarfólk vita.

Ef þú uppgötvar eld. Ef þú uppgötvar eld í hótelinu ýttu strax á handboða fyrir brunaviðvörunarkerfið sem á að vera staðsettur á hæðinni. Ef eldurinn er lítill og það er slökkvibúnaður nálægt reyndu þá að slökkva hann ef þú treystir þér til.

Það sem er oft sérstakt við hættuástand í hótelum er að gestir hafa yfirleitt mjög litla yfirsýn yfir húnæðið þar sem þeir dvelja í einu herbergi með mjög takmörkuðu útsýni með aðkomu í lyftu og eftir löngum göngum. Gestir fara alltaf sömu leiðina til og frá herberginu þ.e. gegnum aðalinngang og þekkja því sjaldnast aðrar. Hólfanir og fyrirkomulag á hótelum gerir það að verkum að gestir geta ekki vitað hvað er að gerast í öðrum hlutum hótelsins. Ef brunahólfanir eru samkvæmt nútíma viðmiðunum er hætta á eldútbreiðslu takmörkuð. Af þessum sökum er mikilvægt að rýming byrji strax og viðvörun um hættuástand hefur verið gefin. Gleymdu öllu sem þú hefur heyrt um falsboð og farðu strax út úr húsinu. Innan á eða við dyrnar á herberginu þínu er teikning af hótelhæðinni sem herbergið þitt er á og þar eru flóttaleiðirnar frá herberginu sýndar ásamt næstu flóttastigahúsum og staðsetningu slökkvibúnaðar. Mikilvægt er að þú kynnir þér þessar upplýsingar vel. Hafðu í huga að flestir hafa tilhneigingu til að fara út sömu leið og venjulega en það er ekki endilega sú leið sem er næst.

Mundu að áhersla á brunavarnir eru misjafnar eftir löndum og jafnvel svæðum innan sama lands og því rík ástæða til að kynna sér brunavarnir í hótelinu þínu strax við komu.