Rafmagnsöryggi

Flestir þeir eldar sem kvikna á heimilum eru útfrá rafmagni. Slökkvið á sjónvarpi, látið ekki rauða ljósið framan á tækinu loga. Notið aðeins fjöltengi með rofa, pössum okkar á því að hlaða ekki of miklu af rafmagnstækjum á eitt fjöltengi. Lekaliðar ættu að vera í öllum rafmagnstöflum og endurnýja ætti gamlar rafmagnstöflur og raflagnir, fáum fagmann í verkið.

Þau tæki sem valda flestum eldsvoðum eru þessi:
Eldavélar                                         23 %  af eldsvoðum
Sjónvarpstæki                                 20 %
Þvottavélar                                      11%
Orsakir eldsvoðanna eru raktar til:
Rangrar notkunar                             29%                   
Bilunar eða hrörnunar í búnaðir        69%
Lausra tenginga                                  2%

Rafmagnstaflan er hjarta rafkerfisins í hverju húsi. Um hana fer allt rafmagn sem notað er á heimilinu. Öryggin í rafmagnstöflunni eiga að varna því að of mikið álag eða skammhlaup valdi tjóni. Í eldri töflum eru bræðivör sem skipta þarf um þegar þau springa en í nýrri töflum eru varrofar sem slá út við bilun eða of miklu álagi. Gamlar og illa farnar rafmagnstöflur geta verið hættulegar, ekki síst ef þær eru úr tré eða staðsettar inni í skápum þar sem nóg er um eldsmat.
Við sækjum rafmagn fyrir þau tæki sem við notum í innstungur (tengla). Þær ættu að vera sem víðast í hverri íbúð, helst fleiri en ein í hverju herbergi. Innstungur þurfa að vera vel festar og tengiklær eiga að sitja tryggilega í þeim því að sambandsleysi getur valdið hita. Áríðandi er að skipta strax um brotin lok á innstungum til að varna því að heimilisfólk eða gestir komist í snertingu við rafmagn. Hægt er að fá innstungur með barnavörn og ýmsan annan búnað til að varna því að óvitar stingi hlutum í þær og skaði sig.


Oft má ráða af ljósum og öðrum raftækjum hvort eitthvað er athugavert við rafkerfið. Ef skipta þarf oftar um perur í einu ljósastæði en öðru getur það m.a. bent til bilunar. Mikilvægt er að taka mark á slíkum fyrirboðum og láta löggiltan rafverktaka kanna hvað býr að baki. Ástæða er til að minna á að röng stærð eða gerð af peru getur orsakað bruna vegna þess hita sem myndast í ljósastæðinu. Til að mynda er varasamt að nota spegilperur í ljósastæði sem ekki eru sérstaklega gerð fyrir slíkar perur.

Sjónvarpið er u.þ.b. 20% orsakavaldur íkveikju af völdum rafmagns og því nokkrir hlutir sem vert er að hafa í huga.
Ef myndlampinn nær að springa myndast mikill hiti og eldagnir skjótast um allt, í fólk, húsgögn, gluggatjöld og annað sem fyrir er. Erfitt getur reynst að koma handslökkvitæki að til að slökkva eldinn. Þegar slökkt er á tækjunum með fjarstýringu, helst straumurinn áfram á því og brunahættan er því stöðugt fyrir hendi. Hættan er til staðar hvort sem tækin eru ný eða gömul.