Upplýsingar fyrir hönnuði

Upplýsingar fyrir hönnuði
Eitt af verkefnum SHS er að leiðbeina hönnuðum sem eru að teikna byggingar. Forvarnarsvið SHS sér um þessa þjónustu. Það er krafa byggingaryfirvalda á svæði SHS áður en byggingarleyfi eru samþykkt að SHS hafi yfirfarið hönnunargögn og samþykkt þau fyrir sitt leyti.
Af því tilefni hefur SHS um nokkurt skeið sett á heimasíðu sína efni sem hugsað er sem leiðbeiningar fyrir hönnuði og gegnir Eldmiðillinn því hlutverki. Oft á tíðum liggur ekki í augum uppi hvað sum ákvæði laga og reglna eiga að þýða, þetta efni er hugsað sem skýringarefni og sem túlkun SHS á ákvæðum reglugerða.