Mengunarslys

Mengunarslys

SHS sinnir viðbrögðum við mengunarslysum á höfuðborgarsvæðinu og víðar þegar eftir því er leitað samkvæmt lögum um brunavarnir nr. 75/2000. Einnig er samningur milli Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. og Faxaflóahafna sf. um aðgerðir vegna hugsanlegra mengunaróhappa á hafnarsvæði Faxaflóahafna sf. Í samningnum felst að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. fer með stjórnun aðgerða þegar mengunaróhöpp verða. Samningurinn er m.a. gerður á grundvelli laga um verndun hafs og stranda frá árinu 2004. Búnaður Faxaflóahafna sf. sem ætlaður er til nota í mengunarslysum er í vörslu slökkviliðsins auk þess sem slökkviliðið annast undirbúning og skipulagningu nauðsynlegra æfinga.
Í samfélagi okkar eru mörg hættuleg, ólík og flókin efni í notkun sem geta valdið slysum á fólki og mengun á umhverfi ef óhapp verður. Því krefjast þau mismunandi meðferðar og viðbragða ef slys verða og ekki nægir einungis að hefta útbreiðslu efna heldur þarf að fjarlægja þau og stundum gera hlutlaus.
SHS er stöðugt að endurnýja og bæta við búnað sem þarf að vera mjög víðtækur. Efnin eru stundum fljótandi, í föstu formi, sem lofttegund, ósýnileg og jafnvel lyktarlaus. Þetta gerir málið flókið og notast slökkviliðið við allskyns skynjara og tæki til þess að nema og mæla efni í umhverfinu.

  • Handbók um hættuleg efni má nálgast hér.