Sjúkraflutningar

Sjúkraflutningar í fremstu röð

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnir sjúkraflutningum samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið.  Núverandi samningur er til tveggja ára og gildir út árið 2011.  Samningurinn tekur til þeirra sjö sveitarfélaga sem standa að SHS, auk Kjósarhrepps.  Einnig er í gildi samningur ráðuneytisins við Rauða krossinn um að hann útvegi og reki sjúkrabifreiðar á öllu landinu og ýmsan fastan búnað í þær.  Samkvæmt samningnum eru að lágmarki tólf sjúkrabifreiðar hjá SHS.

Um 80 prósent sjúkraflutninga á öllu landinu fara fram á höfuðborgarsvæðinu.  Sjúkrabifreiðar SHS voru boðaðar í útkall 20.813 sinnum á árinu 2009.  Þar af voru 6.072 bráðatilfelli (F1, F2).  Flutningar út fyrir þjónustusvæði SHS voru 517 árið 2009.

Skipulag sjúkraflutninga
Sjúkrabifreiðar eru staðsettar á öllum starfsstöðvum SHS, í Skógarhlíð, á Tunguhálsi og í Skútahrauni.  Þannig myndast gott net til að tryggja að viðbragðstími sé eins stuttur og hægt er.  Allar sjúkrabifreiðarnar eru eins búnar, en helsti búnaður sjúkrabifreiðar er:  Hjartarafstuðtæki, súrefni, tæki til öndunarhjálpar, búnaður til lyfjagjafar, búnaður til að aðstoða við fæðingu, sáraumbúðir, spelkur og fleira.  Bifreiðarnar eru svo vel búnar að í raun og veru er um að ræða bráðamóttöku á hjólum.

Sjúkraflutningar eru flokkaðir í fjóra flokka, F1 til F4 eftir alvarleika, þar sem F1 er hæsti forgangur.  Sjúkrabifreiðar aka á forgangi, með blá ljós og jafnvel sírenur í forgangi F1 og F2.  Munurinn á flokkunum er sá að í F1-útköll er send sérhæfð aðstoð en grunnaðstoð í F2-útköll.  F3 eru útköll sem þarf að sinna strax án þess að þörf sé á að aka á forgangi.  F4 eru flutningar sem liggja fyrir með fyrirvara, þ.e. eru pantaðir fram í tímann, til dæmis vegna flutninga milli stofnana.